Grein úr "Þokunni" - umhverfisblaði Landverndar. Janúar 2025.
https://www.thoka-blad.is/
Ertu á móti framförum?”
Margar áskoranirnar blasa við á nýju ári – þegar nýir stjórnarherrar taka við völdum
vítt um heiminn, sumir með æði sérkennilega sýn á samfélag manna og réttlæti.
Stjórnmálin verða æ klikkaðri á sama tíma og auðlindir jarðar sem knýja hagsældina
hafa látið á sjá – náttúran er komin í nauðvörn. Hagsæld á Vesturlöndum sem að
hluta byggðist á að seilast inn á lendur annarra til að halda tannhjóli hagsvaxtarins
gangandi, í Afríku, Asíu, Suður-Ameríku – you name it – sem hefur valdið ómældum
hörmungum vítt um heiminn.
Hér heima er einnig nýtt fólk í brúnni og það verður spennandi að fylgjast með
hversu vel þeim tekst að stíga ölduna. Báran rís brött, því það eru hreint ótrúlega
snúin viðfangsefni sem bíða úrlausnar.
Orkufrekjukórinn er nú kominn upp á háa C – með allar raddir mannaðar. Gigg út
um allar trissur og þjóðin leggur við hlustir. Erum við að verða rafmagnslaus?
Virkilega? Við, sem framleiðum meira rafmagn en nokkur önnur þjóð á hvern íbúa –
Noregur er eins og 9 volta batterí í samanburði við íslenska megavattið. Hver
stjórnar eiginlega þessum kór?
Vindmyllur? Út um allar koppagrundu? Orkusparnaður hvað? Vindmyllur þurfa
jöfnunarorku því þau undur gerast á Íslandi að stundum er logn (í alvöru). Því þarf
almenningur að punga út meiri peningum í aðrar virkjanir og fórna meiri náttúru til að
dæmið gangi upp. Gáfulegt? Nei. Svo þarf innviði til að flytja rafmagnið til notenda,
hver borgar fyrir það? Vindmyllunum fylgir þykk súpa neikvæðra umhverfisáhrifa og
félagslegra vandræða. Svo er ekkert ljóst í hvað á að nota alla þessa orku.
Orkuskipti er eiginlega orðið annað hugtak á peningum í vösum auðfólks sem þarf að
græða meira. Með dassi af “ertu á móti framförum?” réttlætingu. Við hin borgum
brúsann.
Loftslag jarðar er að breytast vegna áhrifa þeirrar kynskóðar á Vesturlöndum sem
ólst upp í sívaxandi hagsæld. Afleiðingarnar eru geigvænlegar. Þjóðir heims
keppast við – flestar aðeins í orði – að draga úr losun þessara gastegunda. Ísland
líka – í orði. En um leið lokar þjóðin augunum fyrir því að losun
gróðurhúsalofttegunda er langsamlega mest frá landinu sjálfu - moldinni. Vegna
framræslu á mýrum og vegna þess hve moldin okkar er tætt og illa farin, svo
kolefnisforði hennar tapast út í andrúmsloftið sem CO 2 . Nú er hins vegar að komast í
tísku að afneita loftslagsbreytingum. Síst af öllu fást stjórnarherrar – eða fjölmiðill
okkar landsmanna, Ríkisútvarpið, að ræða málin, t.d. í aðdraganda kosninga.
Síðasta ár var það kaldasta á öldinni á Íslandi – öfugt við það sem gengur og gerist
annars staðar. Spurningin er hvort hafstraumar Norður-Atlantshafsins séu að
veikjast, að ylurinn að sunnan sé að dofna. Þá er stutt í Ísöld á Íslandi. Þá munum
við landsmenn þurfa að fylkjast suður á bóginn, og bæta þar með örfáum hræðum
(hlutfallslega) í gríðarlegan hóp fólks sem er á flótta undan hvers kyns hörmungum.
Ég velti því fyrir mér hvort við verðum t.d. velkomin í Venesúela, Úganda, Sýrlandi?
Ætli það verði mikil og tafsöm skriffinnska sem fylgir? Flóttamannabúðir? Ætli
hörundsliturinn komi til með að skipta máli?
Ólafur Gestur Arnalds
Prófessor á eftirlaunum