Ástand lands og landlestur - Land condition and land literacy
Mjög hefur gengið á auð landsins eftir aldalanga ofnýtingu. Jarðvegsrof hefur eytt landi (næsta undirsíða), en auk þess eru gróðurlendi víða í slæmu ástandi. Um 40% landsins telst gróinn, en stærsti hluti gróins lands er rýrt mólendi (Nytjaland). Votlendi hefur einnig víðast verið raskað. Í bókinni Mold ert þú - jarðvergur og íslensk náttúra (2023 (pdf á moldin.is,) eru ítarlegir kaflar um ástand lands og hrun vistkerfa, globalt og á Íslandi. Við Ása L. Aradóttir unnum litla bók - Að lesa og lækna landið (2015) - sem ætlað er að auðvelda landlestur og landlækningar (vistheimt). Bókin er gefin út af Landvernd, Landgræðslunni og LbhÍ . Þá hef ég unnið rit sem ætlað er að gefa fyllri innsýn í ástand landsins og aðferðir til að meta ástand lands. -Ástand lands og hrun íslenskra vistkerfa, en hluti þess efnis er að finna í "Mold ert þú" er einnig tekið á undirliggjandi hvötum landhnignunar, sem eru m.a. landbúnaðarstyrkir (alþjóðlega og á Íslandi). Samdaunasýki fær sérstakt rúm - af hverju tökum við slæmu ástandi sem sjálfsögðum hlut. Skýrt er af hverju ástand lands nú er með afar misjöfnum hætti og beitarþættir fá sérstakt rúm (sjá flipa undir þessari síðu).
English: There has been severe degradation of Icelandic ecosystems since the settlement of Iceland about 870 AD. Living conditions were harsh and existence was marginal. Soil erosion is discussed under a special sub-page, but the condition of the land is discussed under the 12th chapter of "The Soils of Iceland", which has a reference list that may be of use. Asa L. Aradottir and OA have published a book in Icelandic titled "How to read and heal the land" and a monogrhap, "Land condition and the collapse of Icelandic ecosystems" was published in 2020, also in Icelandic.