Loftslag, kolefni og mold
Jarðvegur er afar mikilvægur fyrir kolefnishringrás jarðar og styrk gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu. Losun kolefnis úr mold er meginuppspretta losunar CO2 frá Íslandi – mun stærri uppspretta en sem nemur losun af mannavöldum þegar landið er ekki talið með. Ritið „Loftslag, kolefni og mold“ eftir Ólaf Arnalds og Jón Guðmundsson fjallar um kolefni og mold á Íslandi í breiðu samhengi.
Áætluð losun vegna eyðingar íslenskra vistkerfa síðasta árþúsund nemur þúsundum milljóna tonna CO2. Mikil losun frá landi útskýrir gríðarlega stórt sótspor dilkakjötsframleiðslu og hestaeignar (getur numið hundruðum kg CO2 á hvert kg lambakjöts, tugum tonna á hvern hest á ári). Framræst votlendi og þurrlendisvistkerfi í slæmu ástandi valda mestu um þetta stóra sótspor. Það er þó afar misjafnt eftir eðli lands og landnýtingu hverju sinni hve losunin er mikil, skynsamleg landnýting getur leitt til kolefnisbindingar. Unnt er að draga úr losun með því að bæta ástand land og endurheimt votlendis sem ekki er nýtt til ræktunar. Endurheimt vistkerfa á landslagsskala, t.d. birkiskóga geta stuðlað að stórfelldri bindingu gróðurhúsalofttegunda, jafnvel milljónir tonna CO2 á ári. Endurskoða verður nýtingu á illa förnu landi og víkka út þann hóp sem telst til hagaðila er varðar nýtingu lands í eigu samfélagsins.