Olafur Arnalds. Soil and environmental scientist
  • Moldin.net Ólafur Arnalds
  • Mold - Soils
    • Íslensk mold
    • The Icelandic soil
    • Jarðvegskort - Soil map of Iceland
  • Mold ert þú - Bók
    • Mold ert þú - kaflar
  • The Soils of Iceland
    • Chapters - Abstracts
  • To Read the Land
  • OA Skrif - Publications
    • Books and monographs
    • Peer reviewed papers
    • Other publications, reports etc
  • Ástand lands - Land condition
    • Ástandsritið
    • Loftslag og mold - rit
    • Að lesa og lækna landið
    • Land literacy
  • Rof, sandar og ryk - Erosion / Aeolian / Dust
    • Jarðvegsrof á Íslandi
    • Soil Erosion in Iceland
    • Dust prediction / rykspá
    • Sandarnir
    • The Aeolian Environment
    • Birds and dust
    • Erosion and Aeolian References
  • Frost
    • Ísnálar
  • Náttúruvernd
    • Hvílum hakann
    • Að flúga á tré í Öskjuhlíð
    • Á móti framförum? (Þokan)
    • Auðkúluheiði - in memoriam
    • Skógartröll
    • Beit, ástand og loftslag
    • Hugsjónafólk og náttúra
    • Almenningar
    • Stúlkan í skóginum
    • Jarlhettur og beitin
    • Lúpína í eyðifjörðum
    • Landmannalaugar
  • Sauðfé og beit
    • Beit, ástand og loftslag
    • Ljósglæta í þoku sauðfjárstyrkja
    • Heildargreiðslur
    • Á röngunni
    • Beit og ástand lands
    • Staða sauðfjárframleiðslu
    • Beit - Afneitun vanda.
  • Lífið / The life
    • Soil poems
    • Geislavirkni og dansandi leir / Dancing clay
    • Egg og öld vistheimtar
  • Um ÓA - About OA
    • Um Ólaf Arnalds
    • CV
    • Ættfræðin - stutt
Picture
 Bókin "Mold ert þú" er aðgengileg á heimasíðu bókarinnar - moldin.is  á pdf formi.

Bókin fékk viðurkenningu Hagþenkis 2023:
hagthenkir.is/vidurkenningarhafi-hagthenkis-2024/​



Aðeins um bókina:
Moldin fæðir og klæðir jarðarbúa og hún miðlar jafnframt ferskvatni um vistkerfi. Skilningur á náttúrunni og hvernig hún bregst við álagi vegna athafna mannsins á jörðinni krefst þekkingar á jarðvegi.

Jarðvegur á Íslandi er einstakur á heimsvísu, frjór en viðkvæmur, því aðstæður fyrir þróun hans hérlendis eru afar sérstakar. Grunnur að jarðvegsfræði er lagður í upphafi bókarinnar og síðan er íslenskum jarðvegi gerð sérstök skil.  

Í bókinni er varpað ljósi á hversu miðlæg moldin er í kolefnishringrás jarðar, enda er þar að finna meira kolefni en í gróðri og andrúmslofti samanlagt. Hún getur bæði bundið og losað CO2 og hefur afgerandi áhrif á styrk gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu og loftslagshlýnun.

Í „Mold ert þú“ er útskýrt af hverju áhrif frosts á náttúruna eru meiri hérlendis en þekkist annars staðar. Hinum einstöku sandauðnum og áhrifum þeirra á öll vistkerfi landsins er einnig gefinn sérstakur gaumur.

Leitast er við að opna augu lesandans fyrir eðli og ástandi vistkerfa – þar sem moldin gegnir lykilhlutverki ásamt gróðurþáttum. Ferli hnignunar eru skýrð sem og þeir þættir sem skilgreina ástand lands. Í bókinni er dregin upp skýr mynd af stöðu íslenskra vistkerfa sem víða eru í afar hnignandi ástandi.
​
 Fjallað er um rætur landhnignunar og rangrar landnýtingar hérlendis sem annars staðar, en þeirra er m.a. að leita í lögum, styrkjakerfi, samdaunasýki o.fl. þáttum.
Að lokum er vikið að vistheimt – endurheimt vistkerfa – sem er e.t.v. mikilvægasta viðfangsefni mannkynsins nú á dögum.

 
 


 


Proudly powered by Weebly